Þátttakendur fylla út spurningalista bæði fyrir og eftir gagnasöfnunina. Þeir eru flokkaðir eftir heilsufarsstöðu, til dæmis sem heilbrigðir einstaklingar, sjómenn, einstaklingar með sögu um heilahristing, Parkinsonssjúkdóm, hálshnykk (whiplash) eða aflimun.
Spurningalisti fyrir gagnasöfnun
Í upphafi veita þátttakendur almennar upplýsingar, svo sem aldur, kyn, þyngd og hæð. Því næst svara þeir spurningum um daglegar venjur, þar á meðal hreyfingu, neyslu matar, koffíns, nikótíns og áfengis.Að því loknu meta þátttakendur tilhneigingu sína til ferðaveiki út frá fyrri reynslu af samgöngum og afþreyingu. Þeir gefa einkunn á kvarða frá 0 til 3 sem lýsir upplifun þeirra.Þátttakendur veita einnig upplýsingar um almenna heilsu sína, þar á meðal fyrri reynslu af heyrnarleysi, eyrnasuði, svima, mígreni, streitutengdum höfuðverk og háþrýstingi. Til að meta núverandi heilsufar svara þeir einnig spurningum um sögu um heilahristing, kvíða og þunglyndi, sem og núverandi einkenni á borð við vanlíðan, þreytu, höfuðverk og ógleði. Auk þess eru safnaðar hópsértækar upplýsingar frá ákveðnum þátttakendahópum, til dæmis einstaklingum með hálshnykk, um þætti eins og verki, þörf fyrir aðstoð við persónulega umönnun, einbeitingu og daglegar athafnir.
Spurningalisti eftir gagnasöfnun
Að lokinni gagnasöfnun meta þátttakendur sömu einkenni á ný. Þetta gerir kleift að bera saman líðan þeirra og tengd einkenni fyrir og eftir hermunina.
Þátttakendum er útvegað afskekkt og einkarými til að fylla út spurningalistann, þannig að trúnaður sé tryggður. Að útfyllingu lokinni eru gögnin samstundis gerð ópersónugreinanleg (nafnlaus). Eftir það hefur rannsóknarteymið ekki frekara frumkvæði að samskiptum við þátttakandann.
Electroencephalography
Til að safna upplýsingum um rafvirkni heilans notum við heilalínurit (EEG, electroencephalography). Við EEG-mælingu eru rafskaut fest á hársvörðinn til að nema örsmá rafboð sem verða til þegar taugafrumur heilans eiga í samskiptum. Þessi rafboð veita mikilvægar upplýsingar um starfsemi heilans og geta sýnt mynstur sem tengjast mismunandi vitrænni virkni og hugarástandi.
Í rannsókninni notum við þróaða EEG-hettu sem inniheldur mörg rafskaut, staðsett á markvissan hátt til að safna ítarlegum gögnum frá mismunandi svæðum heilans. Hettan gerir okkur kleift að fylgjast með og skrá rafvirkni heilans í rauntíma, sem auðveldar nákvæma greiningu á svörun taugakerfisins.

Electrocardiography
Til að fylgjast með rafvirkni hjartans yfir ákveðið tímabil notum við hjartalínurit (ECG, electrocardiography). Með því að festa rafskaut á húðina mælir ECG tímasetningu og styrk þeirra rafboða sem stýra hjartslættinum. Þessi aðferð veitir nákvæmar upplýsingar um starfsemi og hjartsláttartakt hjartans.
Við rannsóknina er notaður BioSignalsPlux Explorer Kit til ECG-mælinga. Búnaðurinn samanstendur af þráðlausri fjögurra rása BioSignalsPlux HUB-miðstöð, faglegum skynjurum, PLUX Bluetooth-móttakara, rafskautum og hleðslutæki í læknisfræðilegum gæðaflokki.
Þrír ECG-skynjarar og einn skynjari fyrir rafleiðni húðar (EDA, Electrodermal Activity) eru tengdir við þráðlausu fjögurra rása BioSignalsPlux HUB-miðstöðina til að safna ECG-gögnum á öllum stigum rannsóknarinnar.
ECG-rafskautin eru fest á þátttakandann þannig að mælt er frá hægri handlegg (RA, Right Arm) að vinstri fæti (LF, Left Foot). Staðsetning rafskautanna byggir á Einthoven-þríhyrningnum, sem er staðlað uppsetningarkerfi fyrir nákvæmar hjartalínuritsmælingar.
Til hagræðingar í framkvæmd rannsóknarinnar er þó eitt rafskaut fest efst á vinstra læri í stað þess að vera á vinstri fæti. Þessi smávægilega breyting á staðsetningu hefur ekki marktæk áhrif á nákvæmni ECG-mælinganna en auðveldar framkvæmd tilraunarinnar.

Vöðvarafrit (EMG)
Auk þess söfnum við gögnum með vöðvarafriti (EMG, electromyography), sem mælir rafvirkni beinagrindarvöðva. Við mælingarnar eru rafskaut fest á húðina yfir þeim vöðvum sem á að rannsaka. EMG er mikilvæg aðferð til að meta bæði starfsemi vöðva og virkni þeirra taugafrumna sem stjórna hreyfingum þeirra.
Rafvirkni vöðvanna er mæld með sex þráðlausum skynjurum (sýnatökutíðni 1600 Hz, Kiso ehf., Reykjavík, Ísland), sem eru staðsettir á sex tilteknum vöðvum (þrír á hvorum fæti). Skynjararnir eru festir á eftirfarandi vöðva:
- TA (Tibialis Anterior) – fremri sköflungsvöðvi.
- GL (Gastrocnemius Lateralis) – ytri höfuð kálfavöðvans (gastrocnemius).
- Soleus – djúpi kálfavöðvinn (soleus).
Að auki eru átta rafskaut til viðbótar (fjögur vinstra megin og fjögur hægra megin) notuð til að rannsaka betur líkamsstöðu- og jafnvægisstjórnun. Þau eru staðsett yfir eftirfarandi vöðvum:
- Splenius capitis – staðsettur aftan á hálsi og efst á baki.
- Sternocleidomastoideus – staðsettur sitt hvoru megin á hálsinum.
- Erector spinae – vöðvahópur sem liggur meðfram hryggsúlunni.
- Trapezius – axlarhettuvöðvi sem liggur frá höfuðkúpubotni niður eftir efra baki og út að öxlum.
Gagnasöfnunarferli BioVRSea samanstendur af sex aðskildum stigum sem eru hönnuð til að meta jafnvægi og stjórnun líkamsstöðu. Stigin eru: grunnstig (Baseline, BL), undirbúningsstig (Pre-phase, PRE), 25% stig, 50% stig, 75% stig og lokastig (Post-phase, POST).
Mælingar úr 25%, 50% og 75% stigunum eru sameinaðar og meðaltal þeirra reiknað. Þessi sameinaði hluti er nefndur miðstig (MOVE).
Á grunnstigi (BL) stendur þátttakandinn kyrr á hreyfipallinum með handleggina niður með síðum og horfir á sýndarumhverfi án sjávar í tvær mínútur.
Á undirbúningsstigi (PRE) er áreitið eingöngu sjónrænt. Þátttakandinn horfir á sýndaröldur án þess að halda sér í öryggisstöngina.
Í næsta hluta hefst hreyfing pallsins og þátttakandinn heldur í öryggisstöngina á meðan hann verður fyrir bæði sjónrænu og hreyfitengdu áreiti. Hreyfipallurinn hreyfist með mismunandi styrkleika og hvert stig stendur yfir í 40 sekúndur. Þessi hluti rannsóknarinnar er nefndur miðstig (MOVE).
Að lokum er lokastigið (POST) framkvæmt við sömu aðstæður og undirbúningsstigið (PRE), þar sem áreitið er eingöngu sjónrænt og hreyfipallurinn er kyrr.







